150. löggjafarþing — 22. fundur,  21. okt. 2019.

vísun máls til nefndar.

[15:02]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Á þingfundi 17. október var 232. máli, útgáfu á dómum og skjölum Yfirréttarins á Íslandi í tilefni af aldarafmæli Hæstaréttar, vísað til allsherjar- og menntamálanefndar. Málið átti hins vegar að ganga til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar og hefur það þegar verið leiðrétt.