136. löggjafarþing — 23. fundur, 11. nóv. 2008.
störf þingsins.
Herra forseti. Ég vil spyrja hv. þm. Karl V. Matthíasson um aukningu á veiðiheimildum sem við megum búast við á næstunni að verði gefnar út, í þorski og síld og öðru, hvort hann telur rétt að aukning í veiðiheimildum fari til handhafa núverandi kvótahafa. Tilefnið er að ég tel að nota eigi tækifærið til að innkalla allar veiðiheimildir í íslenskri fiskveiðilögsögu og bjóða þær upp á opnum markaði.