148. löggjafarþing — 23. fundur, 7. feb. 2018.
mannanöfn.
83. mál
Virðuleg forseti. Ég þakka fyrir. Það næsta sem ég hafði áhuga á að fræðast frekar um er lengd eða fjöldi nafna og heildarlengd nafns, sem er vandamál núna. Ég náði ekki alveg hvort það var tæklað í frumvarpinu. Var eitthvert hámark eða erum við að fara spænsku leiðina þar sem við getum verið með rosalega mörg nöfn, sem ég held að væri spennandi?