151. löggjafarþing — 24. fundur,  24. nóv. 2020.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 63/2020 um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn.

219. mál
[14:40]
Horfa

Frsm. utanrmn. (Ari Trausti Guðmundsson) (Vg):

Herra forseti. Þetta er komið í ágæta rútínu hjá okkur. Ég geri grein fyrir nefndaráliti á þskj. 369 í 219. máli frá hv. utanríkismálanefnd.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Gaut Sturluson frá utanríkisráðuneyti og Drífu Sigurðardóttur og Rögnu Bjarnadóttur frá dómsmálaráðuneyti.

Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 63/2020, frá 30. apríl það ár um breytingu á IX. viðauka um fjármálaþjónustu við EES-samninginn frá 2. maí 1992, og fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2018/843, dagsetta 30. maí 2018, um breytingu á tilskipun ESB 2015/849 um ráðstafanir gegn því að fjármálakerfið sé notað til peningaþvættis eða til fjármögnunar hryðjuverkastarfsemi og um breytingu á tilskipunum 2009/138/EB og 2013/36/ESB.

Framsetning tillögunnar telst að mati nefndarinnar í samræmi við 7. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála.

Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.

Nefndarálitið er dagsett 18. nóvember 2020 og undir það rita hv. þingmenn Sigríður Á. Andersen, formaður og framsögumaður, Ari Trausti Guðmundsson, sem leysir framsögumann af, Bryndís Haraldsdóttir, Gunnar Bragi Sveinsson, Logi Einarsson, Njáll Trausti Friðbertsson, Rósa Björk Brynjólfsdóttir, Silja Dögg Gunnarsdóttir og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.

Herra forseti. Nú hef ég lokið máli mínu.