151. löggjafarþing — 24. fundur,  24. nóv. 2020.

þinglýsingalög.

205. mál
[16:42]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Páll Magnússon) (S):

Virðulegi forseti. Ég flyt hér nefndarálit um frumvarp til laga um breytingu á þinglýsingalögum, nr. 39/1978, frá meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Rún Knútsdóttur og Maríu Dungal frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Ólaf Sigurðsson og Helgu Láru Hauksdóttur frá Landssamtökum lífeyrissjóða og Jónu Björk Guðnadóttur frá Samtökum fjármálafyrirtækja.

Nefndinni bárust umsagnir frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Landssamtökum lífeyrissjóða og Samtökum fjármálafyrirtækja.

Með lögum um breytingu á ýmsum lögum til að mæta efnahagslegum áhrifum heimsfaraldurs kórónuveiru, nr. 25/2020, sbr. lög nr. 82/2020, var m.a. samþykkt ákvæði til bráðabirgða við þinglýsingalög, nr. 39/1978, sem veitti viðauka við veðbréf sem kveður á um frestun greiðslna á skuldum einstaklinga eða fyrirtækja í allt að níu mánuði, sömu réttaráhrif og ef honum væri þinglýst og hann samþykktur af síðari veðhöfum. Heimildin var áður bundin við að kröfuhafar skyldu þinglýsa viðaukanum fyrir 16. mars 2021. Með frumvarpinu er lagt til að kröfuhafar fái lengri frest til að þinglýsa viðaukum við veðbréf sem veita skuldara greiðslufrest á afborgunum og/eða vöxtum til allt að 18 mánaða fram til 16. maí 2021.

Gestir voru samdóma um það að heimildin hafi nýst vel, bæði fyrir kröfuhafa og skuldara, og hafi leitt til einföldunar og meiri skilvirkni. Þá væri mikilvægt að framlengja frestinn, m.a. með hliðsjón af sóttvarnaaðgerðum vegna kórónuveirufaraldursins.

Meiri hlutinn áréttar að ekki er um íþyngjandi heimild að ræða og telur nauðsynlegt að kröfuhafar geti boðið upp á tímabundin úrræði fyrir skuldara til að mæta tímabundnum erfiðleikum vegna áhrifa heimsfaraldursins.

Meiri hlutinn leggur því til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Sá sem hér stendur var fjarverandi við afgreiðslu málsins en skrifar undir þetta álit samkvæmt heimild í 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fastanefnda Alþingis. Hv. þingmenn Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir og Þorsteinn Sæmundsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Undir þetta nefndarálit rita auk þess sem hér stendur hv. þingmenn Guðmundur Andri Thorsson, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Birgir Ármannsson, Silja Dögg Gunnarsdóttir og Steinunn Þóra Árnadóttir.