Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 24. fundur,  27. okt. 2022.

Staðan í Íran.

[14:07]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf):

Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir þessa umræðu og tek heils hugar undir með öllum sem hér hafa kvatt sér hljóðs. Ég ætla að vara við þeim upplestri sem hér fer fram, alla vega ráðlegg ég þeim sem viðkvæmir eru að víkja úr sal eða slökkva á sjónvarpinu. Ég ætla að lesa stuttan kafla úr siðabók erkiklerksins Khomeini, sem kom út árið 1979, árið sem kvikmyndin The Wall kom út með Pink Floyd og árið sem Life of Brian var sýnd. Þetta er ekki tilraun erkiklerksins til gamanmála, ég tek það fram. Hann segir:

„Maður getur stundað kynlíf með dýrum eins og kindum, kúm, úlföldum o.s.frv. Hins vegar ætti hann að drepa dýrið eftir að hann hefur fengið fullnægingu. Hann ætti ekki að selja fólkinu í sinni eigin sveit kjötið. Hins vegar ætti að vera í lagi að selja kjötið í næsta þorp.“

Þetta segir allt sem segja þarf um hugarheiminn sem við erum að fjalla um hér í dag og megi hann breytast hratt og örugglega með okkar atfylgi og annarra siðaðra þjóða.