144. löggjafarþing — 25. fundur,  3. nóv. 2014.

eftirlit með lögreglu.

[15:29]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra svarið. Ég fagna þeirri vinnu mjög.

Mig langar þá að spyrja hæstv. dómsmálaráðherra hvernig hann sjái fyrir sér að þetta eftirlit verði sem sjálfstæðast og sem best aðskilið frá almennri vinnu lögreglunnar.