152. löggjafarþing — 25. fundur,  20. jan. 2022.

upplýsingamiðlun um heimilisofbeldismál.

20. mál
[18:51]
Horfa

Flm. (Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Jú, svo sannarlega þurfum við að auka traust og tiltrú allra hlutaðeigandi á kerfinu og þetta er ótrúlega mikilvægur punktur inn í þessa umræðu. Mér finnst mikilvægt að við tökum hana og hv. þingmaður er formaður allsherjar- og menntamálanefndar og ég bind miklar vonir við að málið fái góða og ítarlega meðferð akkúrat líka með þennan punkt að leiðarljósi við meðferð nefndarinnar á málinu.