Bráðabirgðaútgáfa.
153. löggjafarþing — 25. fundur,  7. nóv. 2022.

varamenn taka sæti.

[15:01]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Viðreisnar um að Þorgerður K. Gunnarsdóttir, 5. þm. Suðvest., muni ekki geta sinnt þingstörfum á næstunni. Einnig hefur borist bréf frá formanni þingflokks Sjálfstæðisflokksins um að Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, 1. þm. Reykv. s., verði fjarverandi á næstunni vegna embættiserinda. Í dag taka því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Viðreisnar í Suðvesturkjördæmi, Elín Anna Gísladóttir, og 1. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík suður, Friðjón R. Friðjónsson.

Þau hafa áður tekið sæti á Alþingi og eru boðin velkomin til starfa að nýju.