133. löggjafarþing — 25. fundur, 13. nóv. 2006.
Vísinda- og tækniráð.
295. mál
Virðulegi forseti. Með frumvarpi þessu til laga er lagt til að rammanum utan um þessi mál verði breytt. Hvað síðan verður sett inn í þann ramma fer eftir öðrum ákvörðunum sem m.a. Alþingi getur tekið varðandi fjárveitingar og fleira í þeim dúr, en það er að sjálfsögðu sjálfstæð ákvörðun hverju sinni.