152. löggjafarþing — 26. fundur,  25. jan. 2022.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

167. mál
[18:27]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni kærlega fyrir andsvarið. Ef ég skildi það rétt var hann að vitna í umsögn þar sem talað var um fúsk innan byggingariðnaðarins og slæleg vinnubrögð. Ég er ekki dómbær á það hér og nú, ég hef ekki reynslu af því. Ég hef hins vegar reynslu af því að sitja í sveitarstjórnum og hef reynslu af skipulagsmálum og húsnæðismálum í sveitarstjórnum. Að því leyti get ég tekið undir þessar breytingar, hversu mikilvægt það er að færa þetta undir sama ráðuneyti til þess að hægt sé að vinna hlutina hraðar og betur og hægt sé að stytta biðlista og boðleiðir. Ég vona svo sannarlega að þessar breytingar verði til betrumbóta.