146. löggjafarþing — 26. fundur, 7. feb. 2017.
viðbótareftirlit með fjármálasamsteypum.
111. mál
Herra forseti. Ég þakka hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra gott svar. Það er ágætt að nýta tækifærið til að spyrjast fyrir um innleiðingarhallann. Hversu langt erum við á eftir í því að innleiða tilskipanir miðað við það sem við ættum að vera? Ég hef ekki séð neina sérstaka tölu í því efni. Eru einhverjar frekari reglur hjá Fjármálaeftirlitinu eða öðrum stofnunum sem væri þess virði að taka til umræðu hér á þingi í ljósi þessa.