143. löggjafarþing — 27. fundur,  27. nóv. 2013.

erindi innanríkisráðuneytis til Alþingis.

[15:02]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Alþingi hefur borist erindi frá innanríkisráðuneytinu, dagsett 25. nóvember síðastliðinn, er varðar bréf frá Mannréttindadómstól Evrópu til ráðuneytisins og tilkynnt að dómstóllinn hafi mál Geirs H. Haardes gegn íslenska ríkinu til meðferðar og hafi dómstóllinn beint nokkrum spurningum til ríkisins um málið. Bréfið er sent Alþingi til upplýsingar og er eins og önnur erindi lagt fram á lestrarsal.