152. löggjafarþing — 28. fundur,  27. jan. 2022.

niðurstaða Félagsdóms í máli flugfreyja.

[11:11]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Herra forseti. Á þriðjudaginn voru birtar niðurstöður Félagsdóms í máli Alþýðusambands Íslands fyrir hönd Flugfreyjufélags Íslands gegn Samtökum atvinnulífsins fyrir hönd Samtaka ferðaþjónustunnar vegna Icelandair. Gerð var sú eðlilega krafa að Icelandair, sem hafði þegið stuðning ríkisins við að segja fólki upp, réði starfsfólkið inn aftur í starfsaldursröð þegar starfsemi fyrirtækisins leyfði. Icelandair hafði ekki gert það heldur valið úr hópnum eftir eigin geðþótta. Niðurstaða Félagsdóms er skýr um að Icelandair hafi borið að fara eftir starfsaldri þegar félagið afturkallaði uppsagnir flugfreyja og flugþjóna.

Í rökstuðningi Samtaka atvinnulífsins, sem tók til varnar fyrir Icelandair, segir, með leyfi forseta:

„Stefndi bendir á að við meðferð Alþingis á frumvarpi því sem orðið hafi að lögum nr. 50/2020 hafi verið hafnað þeirri breytingartillögu að starfsaldur ætti að ráða við endurráðningu í störf.“

Við afgreiðslu uppsagnarleiðarinnar vorið 2020 lagði ég fram breytingartillögu um að skýrt yrði kveðið á um það í lögunum að endurráðning skyldi verða í starfsaldursröð. Sú tillaga var felld. Reyndar voru það aðeins þingmenn Samfylkingarinnar sem greiddu henni atkvæði ásamt einum hv. þingmanni utan flokka. Milli umræðna um málið hafði forseti ASÍ sent öllum þingmönnum bréf um mikilvægi þess að slík tillaga yrði samþykkt. Stjórnarþingmönnum og ráðherrum í ríkisstjórninni var því alveg ljóst hver gallinn var á frumvarpinu en höfnuðu tillögunni og gáfu með því skýr skilaboð til fyrirtækja og Samtaka atvinnulífsins um að starfsaldur skipti ekki máli við endurráðningu. Brotið var á starfsmönnum og stjórnvöld tóku meðvitaða ákvörðun um að koma ekki í veg fyrir það.

Hvernig telur hæstv. ráðherra að bregðast eigi við niðurstöðu Félagsdóms? Hvernig ætlar ríkisstjórnin að axla ábyrgð í þessu máli?