breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir. Ég hafði svo skamman tíma áðan og vil ítreka áskorun mína til forsætisráðherra um að sameina alla forsetaúrskurði um Stjórnarráð Íslands í einn forsetaúrskurð sem heitir þá forsetaúrskurður um Stjórnarráð Íslands, sem forseti Íslands undirritar. Það væri bragur á því, það væri skiljanlegt fyrir almenning, skiljanlegt fyrir þingið og þá kæmi þetta allt fram í einu plaggi. Ég skora líka á þingheim að kynna sér þessa úrskurði frá því í haust því að þar áttu breytingarnar sér stað, ekki í því plaggi sem lagt er fyrir þingið í dag.
Ég segi nei.