152. löggjafarþing — 28. fundur,  27. jan. 2022.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

167. mál
[13:03]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ekkert af því sem hæstv. ráðherra nefndi hér áðan er komið inn í þingið. Það er eitt að tala um viðspyrnustyrki, það er eitt að kynna eitthvað eftir ríkisstjórnarfund en það verður þá líka að fylgja því eftir með haldföstum aðgerðum sem hægt er að ræða á þinginu, greiða atkvæði um og samþykkja að komi að gagni. Það er nú bara það sem ég minntist á áðan. Það liggur ekki fyrir neitt einasta þingmál frá menningarmálaráðuneytinu. Ég stend því við orð mín.