149. löggjafarþing — 29. fundur,  8. nóv. 2018.

auðlindir og auðlindagjöld.

35. mál
[15:26]
Horfa

Flm. (Sigurður Páll Jónsson) (M):

Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir tillögu til þingsályktunar um auðlindir og auðlindagjöld. Auk þess sem hér stendur eru á málinu hv. þingmenn Anna Kolbrún Árnadóttir, Bergþór Ólason, Birgir Þórarinsson, Gunnar Bragi Sveinsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Þorsteinn Sæmundsson. Tillaga hljóðar svo:

„Alþingi ályktar að fela fjármála- og efnahagsráðherra að skipa starfshóp sem:

1. skili tillögum um hvort innheimta eigi afnotagjald fyrir nýtingu auðlinda og þá hvaða auðlinda,

2. leggi fram tillögu um aðferð við álagningu auðlindagjalds sem gæti gengið fyrir allar auðlindir og geri grein fyrir kostum og göllum mismunandi aðferða,

3. taki saman upplýsingar um hvernig gjaldtöku af auðlindanýtingu er háttað í nágrannaríkjum.

Starfshópurinn skili ráðherra tillögum eigi síðar en 1. febrúar 2019.“

Í greinargerð segir að þessi þingsályktunartillaga var áður lögð fram á 146. og 147. löggjafarþingi, mál nr. 536 og mál nr. 61, flutt af hv. þm. Gunnari Braga Sveinssyni en hlaut ekki afgreiðslu og er því hér endurflutt. Í tillögu þessari er lagt til að fjármála- og efnahagsráðherra feli starfshópi að kanna hvort innheimta skuli afnotagjald fyrir nýtingu auðlinda og þá af hvaða auðlindum. Einnig er lagt til að starfshópurinn leggi fram tillögu um aðferð við álagningu auðlindagjalds og geri grein fyrir kostum og göllum mismunandi aðferða. Þá verði teknar saman upplýsingar um hvernig gjaldtöku er háttað í nágrannaríkjum, einkum á Norðurlöndunum.

Flutningsmenn telja rétt að fjármála- og efnahagsráðherra verði falið að skipa starfshópinn enda liggur ekki fyrir nú þegar um hvaða auðlindir er að ræða og þær geta fallið undir fleiri en eitt ráðuneyti og stofnanir. Jafnframt er málefnið umfangsmikið og brýnt auk þess sem það hefur verið til umræðu um árabil og er því eðlilegt að fjármála- og efnahagsráðherra ráðherra stýrir vinnunni á þeim atriðum.

Lengi hafa verið uppi væntingar um að auðlindir landsins skili þjóðinni efnahagslegum arði með einum eða öðrum hætti. Í gegnum tíðina hafa fyrirtæki í eigu ríkisins greitt arð í ríkissjóð og nægir þar að nefna Landsvirkjun.

Auðlindir sem almennt er talað um sem auðlindir þjóðarinnar geta verið af ýmsum toga. Það eru auðlindir í sjó, í lofti eða á landi. Þekkt er að innheimt er veiðigjald í sjávarútvegi samkvæmt lögum um veiðigjald, nr. 74/2012, og ríkir nokkur samstaða um álagningu þess þó svo að deilt sé um hversu hátt það eigi að vera.

Flutningsmenn telja ekki eðlilegt að auðlindagjald sé aðeins lagt á eina atvinnugrein. Mikilvægt er því að mótuð verði heildstæðari stefna enda hefur nýting auðlinda áhrif á umhverfið og er brýnt að tryggt verði að auðlindir séu nýttar á skynsamlegan og arðbæran hátt. Flutningsmenn vilja jafnframt minna á að fram hafa komið hugmyndir um stofnun stöðugleikasjóðs, að fyrirmynd norska olíusjóðsins, þar sem arður af auðlindum í ríkiseign myndi renna allur eða að hluta til í slíkan sjóð.

Auðlindanefnd, sem kosin var á Alþingi í júní 1998, ritaði álitsgerð fyrir forsætisráðuneytið sem kom út árið 2000. Hluti af verkefnum hennar var að fjalla um gjaldtöku af auðlindum til að standa undir rannsóknum á þeim og stuðla að vernd og sjálfbærri nýtingu þeirra svo og til að tryggja að afrakstur sameiginlegra auðlinda skilaði sér á réttmætan hátt til þeirra sem hafa hagsmuna að gæta. Í niðurstöðum nefndarinnar kom fram að hún teldi gjaldtöku af nýtingu náttúruauðlinda styðjast við eftirfarandi rök: Í fyrsta lagi að standa undir þeim kostnaði sem hið opinbera hefði af rannsóknum á og eftirliti með nýtingu auðlinda. Í öðru lagi að tryggja þjóðinni sýnilega hlutdeild í þeim umframarði, sem við köllum auðlindarentu, sem nýting auðlinda í þjóðareign skapaði og í þriðja lagi væri um að ræða svokallaða leiðréttandi skatta og uppbætur, svokallaða græna skatta, til að tryggja hagkvæma nýtingu auðlindanna. Þær auðlindir sem nefndin tilgreindi í álitsgerð sinni voru nytjastofnar á Íslandsmiðum og auðlindir á eða undir sjávarbotni, vatnsafl, jarðhiti og námur, rafsegulbylgjur til fjarskipta og önnur umhverfisgæði.

Ég vil minna á að fyrir nokkrum dögum síðan mælti ég fyrir annarri þingsályktunartillögu sem er skyld þessari og kemur í raun og veru á undan henni, þannig lagað séð. Hún er um auðlindagreiningu, fjallar um hvað er auðlind og hvað er ekki auðlind. Þær eru skyldar að því leytinu til að þessi er framhald af henni.

Að lokinni þessari umræðu þá legg ég til að málinu verði vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar.