mannabreytingar í nefndum.
Borist hefur bréf frá varaformanni þingflokks Samfylkingarinnar, Steinunni Valdísi Óskarsdóttur, dagsett í dag 19. maí, með ósk um mannabreytingar í nefndum, svohljóðandi:
„Þingflokkur Samfylkingarinnar hefur ákveðið í samræmi við 16. gr. þingskapa að Skúli Helgason hverfi úr fjárlaganefnd og taki sæti í heilbrigðisnefnd. Þá fer Oddný Harðardóttir úr heilbrigðisnefnd og tekur sæti í fjárlaganefnd.“
Ef engar athugasemdir eru verða þessar breytingar á skipan fjárlaganefndar og heilbrigðisnefndar.