148. löggjafarþing — 3. fundur,  15. des. 2017.

fjárlög 2018.

1. mál
[16:43]
Horfa

Smári McCarthy (P) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra enn og aftur fyrir svörin. Ég er sammála henni í því að nauðsynlegt sé að nýta hverja krónu vel. Ég vænti þess að við eigum gott samstarf um að láta nýsköpunarumhverfi fyrirtækja á Íslandi vera sem allra best þannig að allir geti notið góðs af.

Það er auðvitað fullt af öðrum atriðum sem þarf að fara yfir almennt og býst ég við að koma í aðra ræðu, ekki síst um utanríkismálin. Ég þakka fyrir þessa umræðu í bili.