148. löggjafarþing — 3. fundur, 15. des. 2017.
fjárlög 2018.
1. mál
Herra forseti. Þá vendi ég mínu kvæði í kross og spyr hæstv. heilbrigðisráðherra, sem situr jú einnig sem hv. þingmaður í meiri hluta á þessu þingi: Mun hún sem ráðherra og þingmaður beita sér fyrir því að Landspítalinn lendi á núlli eða alla vega ekki undir því að lokinni fjárlagaumræðu?