149. löggjafarþing — 3. fundur,  13. sept. 2018.

lengd þingfundar og fyrirkomulag fjárlagaumræðu.

[10:32]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Samkomulag er um það milli forseta og þingflokksformanna að þingfundur í dag geti staðið lengur en til kl. 20 ef þörf krefur.

Í dag verður almenn umræða um fjárlagafrumvarpið í framhaldi af framsögu fjármála- og efnahagsráðherra. Á morgun munu svo fagráðherrar taka þátt í umræðum um einstaka málaflokka.

Samkomulag er um fyrirkomulag umræðunnar, samanber 3. mgr. 67. gr. þingskapa. Fjármála- og efnahagsráðherra hefur allt að 15 mínútur til framsögu nú í upphafi. Réttur til andsvara verður rýmkaður, þ.e. tryggt verður að fulltrúar allra stjórnarandstöðuflokka geti veitt full andsvör við ræðu ráðherra.

Því næst talar einn talsmaður frá hverjum þingflokki í tíu mínútur hver. Aðrir þingmenn hafa og tíu mínútur og gildir hefðbundinn andsvararéttur út umræðuna.