146. löggjafarþing — 30. fundur,  22. feb. 2017.

þátttaka stjórnarflokka í sérstökum umræðum.

[15:25]
Horfa

Smári McCarthy (P):

Frú forseti. Ég hjó eftir því í máli hv. þm. Sigurðar Inga Jóhannssonar að taka ætti á dagskrá ýmis þingmannamál. Nú þykist ég vita að ýmis þingmannamál eru í nefndum og þau gætu verið á hraðri leið þaðan út ef vilji væri til staðar í öllum nefndunum. Ég vildi nota tækifærið og beina því til nefndarformanna og framsögumanna þingmála í nefndum að reyna að drífa sig svo að við í stjórnarandstöðunni höfum eitthvað að gera.