151. löggjafarþing — 30. fundur,  2. des. 2020.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2021.

5. mál
[16:31]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta efh.- og viðskn. (Oddný G. Harðardóttir) (Sf):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti með breytingartillögu frá 1. minni hluta efnahags- og viðskiptanefndar, sem er sú sem hér stendur og er fulltrúi Samfylkingarinnar í nefndinni. Vegna heimsfaraldurs kórónuveiru og þeirra efnahagsaðgerða sem gripið hefur verið til í heimsfaraldrinum verða frumvörp um breytingar á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2021 fleiri en á undanförnum árum. Í þessu áliti verður því ekki fjallað um mikilvæg mál til jöfnunar í samfélaginu sem von er á í sérstökum frumvörpum, svo sem atvinnuleysistryggingar, félagslegan stuðning, tryggingagjald og barnabætur. Von er á frumvarpi um almannatryggingar þótt komið sé inn á þær í þessu nefndaráliti.

Fyrstu greinar frumvarpsins fjalla um hækkun ýmissa gjalda. Lagt er til að kolefnisgjald, olíugjald, almennt og sérstakt kílómetragjald, almennt og sérstakt bensíngjald, gjald á áfengi og tóbaki, gjald í Framkvæmdasjóð aldraðra og gjald til Ríkisútvarpsins hækki um 2,5% en ekki 3,2% í samræmi við verðbólguspá Hagstofu Íslands. Í minnisblaði frá fjármála- og efnahagsráðuneyti til efnahags- og viðskiptanefndar kemur fram að jafnvel þótt hagspá Hagstofunnar sé alla jafna viðmið fyrir uppfærslu krónutölugjalda sé nú miðað við 2,5% hækkun til að stuðla að minni verðhækkunum. Þetta hefur áður verið gert en 1. minni hluti varar við því að gjöld sem eiga að standa undir ákveðnum kostnaði og hækka miðað við verðbólgu dragist saman og standi ekki undir áætluðum kostnaði. Þess vegna legg ég til að öll krónutölugjöld verði tekin til endurmats. Ekki endilega bara þau krónutölugjöld sem nefnd eru í þessu frumvarpi heldur þarf að skoða þá gjaldtöku alla og undir hvaða kostnaði hún á að standa, hvort gjaldtakan verði til þess sem til er ætlast.

Gjald sem ætlað er að standa undir kostnaði við rekstur umboðsmanns skuldara er lagt á gjaldskylda aðila. 1. minni hluti bendir á að þar sem aðgerðir og styrkir stjórnvalda sem fram eru komnir vegna atvinnukreppunnar í kjölfar heimsfaraldurs hafa aðeins að litlu leyti runnið til heimila þeirra sem misst hafa vinnuna og ef ekkert verður að gert leiði það aðgerðaleysi til skuldavanda hjá heimilunum og þá um leið aukinna umsvifa umboðsmanns skuldara. 1. minni hluti leggur á það ríka áherslu að stjórnvöld mæti efnahagsvanda heimilanna til þess að komast hjá því að greiðsluvandi þeirra verði langvarandi með tilheyrandi kostnaði og aukaverkunum til langs tíma. Það má ekki gerast að fólk sem lenti í erfiðri stöðu í bankahruninu endi aftur í slíku rúmum áratug síðan. Meira þarf að gera til að koma í veg fyrir það.

Jafnt aðgengi að húsnæðismarkaði hefur ætíð verið meðal helstu áherslna verkalýðshreyfingarinnar og jafnaðarmanna. Þrátt fyrir yfirlýsingar stjórnvalda í tengslum við lífskjarasamninga lækkar húsnæðisstuðningur að raunvirði milli ára og áætlanir gera ráð fyrir að svo verði áfram. Í heild hefur húsnæðisstuðningur í gegnum vaxtabótakerfið rýrnað að raungildi um meira en 70% frá árinu 2013 og enn meira ef við horfum til þess hvenær viðmiðin voru sett. Heimilum sem fengu vaxtabætur fækkaði um 27.000 milli áranna 2013 og 2018 og fer enn fækkandi. Þá hafa viðmiðanir verið nánast óbreyttar frá árinu 2010 og samkvæmt frumvarpinu eiga þær ekki að breytast á árinu 2021. Þetta gerir það að verkum að kerfið styður sífellt færri heimili. Tekjulágt barnafólk sem á lítið eigið fé í húsnæði sínu fær nú lítinn sem engan stuðning í gegnum vaxtabótakerfið. Lækkun vaxtabóta rýrir kjör lágtekjufólks sem á lítið eigið fé í húsnæði. Alþýðusamband Íslands bendir í umsögn sinni við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2020 á að ef horft er til þróunar í framlögum til vaxtabóta síðastliðinn áratug má sjá að samhliða tilkomu almenna íbúðakerfisins og vexti stofnframlaga til byggingar hagkvæmra leiguíbúða fyrir tekjulága hafa framlög til vaxtabóta dregist saman um svipaða upphæð. Sama gildir þótt lög um hlutdeildarlán hafi verið samþykkt. Framlög til húsnæðismála hafa því ekki verið til að bæta í stuðninginn, eins og þeim var ætlað, heldur í reynd greidd með lækkun á öðru stuðningsformi.

Eins og ég gat um áðan í andsvari við hv. þm. Óla Björn Kárason þá stendur í minnisblaði frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu til efnahags- og viðskiptanefndar að óbreyttar viðmiðunarfjárhæðir leiði til þess að vaxtabætur fari í auknum mæli til þeirra sem eru í efri hluta tekjudreifingarinnar og um helmingur upphæðarinnar fari til þeirra sem eru 48 ára og eldri. 1. minni hluti krefst þess að stjórnvöld standi við fyrirheit sín um að hækka húsnæðisbætur, að húsnæðisstuðningur verði aukinn og skili sér til þeirra hópa sem helst þurfa á slíkum stuðningi að halda.

Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2021 er lagt til að elli- og örorkulífeyrir almannatrygginga hækki um 3,6% í upphafi ársins 2021. Til samanburðar hækkar lágmarkstekjutrygging samkvæmt lífskjarasamningunum um 4,8% á árinu. Bætur almannatrygginga koma því til með að hækka umtalsvert minna en lægstu laun þriðja árið í röð og kjör lífeyrisþega versna í samanburði við aðra hópa. Lágmarksframfærsla almannatrygginga fyrir einstakling sem býr einn verður því 333.268 kr. á árinu 2021 og hefur þá frá árinu 2018 hækkað úr 300.000 kr. eða um rúm 11% á sama tíma og lægstu laun munu hafa hækkað um 17% og verða 351.000 kr. á mánuði. Fyrir einstakling sem býr með öðrum verður lágmarksframfærslutrygging um 256.000 kr. og hefur þá hækkað um rúmlega 11% frá árinu 2018. Hér er miðað við hlutfallslega hækkun en þar sem hækkun lífskjarasamninganna er krónutöluhækkun ætti slíkt hið sama að gilda um hækkun á elli- og örorkulífeyri almannatrygginga. Því ætti hækkunin að vera í það minnsta 15.750 kr. á mánuði á árinu 2021.

Í minnisblaði fjármála- og efnahagsráðuneytisins til nefndarinnar segir að ekki hafi tíðkast að taka mið af vísitölu launa eða hækkun lægstu launa heldur meðalhækkun í kjarasamningum á almennum vinnumarkaði að teknu tilliti til hvenær þeir tóku gildi. Innbyggt óréttlæti er því í túlkun stjórnvalda á 69. gr. laga um almannatryggingar. 1. minni hluti telur með öllu óásættanlegt að kjör elli- og örorkulífeyrisþega skerðist í samanburði við aðra hópa. Sú eðlilega og réttmæta krafa að enginn verði undir lágmarkslaunum var felld við afgreiðslu fjárlagafrumvarpsins fyrir árið 2020. Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur og þeir þingmenn sem bera þá ríkisstjórn uppi vilja að þeir sem eiga allt sitt undir greiðslum almannatrygginga, fólk sem ekki hefur valið sér hlutskipti sitt og löggjafinn sér um að ákveða á hvaða kjörum verða, verði fátækastir á Íslandi.

Meðal eldri borgara sem fá einvörðungu greiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins er hlutfall kvenna hátt. Um 70% lífeyrisþega sem búa við lökustu kjörin eru konur sem voru í hlutastörfum eða heimavinnandi á árum áður. Meðal þeirra sem eru allra verst staddar eru konur af erlendum uppruna. Þessi hópur hefur unnið sér inn lítil eða engin réttindi til greiðslna úr lífeyrissjóðum og þær hafa mjög takmörkuð úrræði til að bæta kjör sín. Bilið á milli þeirra fátæku og þeirra ríku breikkar vegna aðgerðaleysis stjórnvalda sem segja eitt í ræðum en ákveða annað í fjárlögum og tekjufrumvörpum eins og því sem við erum hér að ræða. Á sama tíma eru áform uppi um að lækka fjármagnstekjuskatt. Forgangsröðun hæstv. ríkisstjórnar er skýr og þeirri sem hér stendur finnst hún óásættanleg.

Fyrsti minni hluti gagnrýnir harðlega að enn eitt árið eigi frítekjumark örorkulífeyrisþega vegna atvinnutekna ekki að hækka. Frítekjumarkið hefur verið 109.600 kr. frá árinu 2010. Ef frítekjumarkið hefði hækkað samkvæmt launavísitölu væri það rétt um 200.000 kr. á mánuði. Forgangsröðun ríkisstjórnarinnar, ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur, er líka skýr hvað þetta varðar. Viðmiðum frá árinu 2010 vegna kjara öryrkja er haldið óbreyttum en skattleysismörk vegna erfðafjárskatts, sem einnig hafa staðið óbreytt frá árinu 2010, eru hækkuð umtalsvert erfingjum í vil. Skattleysismörk erfðafjárskatts hækka samkvæmt frumvarpinu um 233%, úr 1,5 millj. kr. í 5 millj. kr. 1. minni hluti leggur því til að frítekjumarkið verði hækkað í tveimur skrefum, verði 150.000 kr. á árinu 2021 og 200.000 kr. á mánuði á árinu 2022. Þetta er hógvær tillaga sem allir ættu að geta fallist á að sé réttmæt og viðráðanleg fyrir ríkissjóð.

Skoska þingið var fyrst þjóðþinga í heiminum til að samþykkja lög um að túrbindi, túrtappar og aðrar tíðavörur yrðu jafnan aðgengilegar öllum þeim sem á þyrftu að halda. Heilbrigðisyfirvöld og sveitarfélög í Skotlandi eiga að sjá til þess að lögunum verði framfylgt. Anna María Allawawi Sonde og Saga María Sæþórsdóttir sendu nefndinni umsögn og bentu á hversu miklu máli gott aðgengi að tíðavörum skiptir, sérstaklega fyrir ungt fólk sem lítið hefur á milli handanna. Annaðhvort er ungu fólki mismunað eftir efnahag foreldra eða sú ósanngjarna krafa gerð að það eyði þeim litlu peningum sem það á í nauðsynlegar vörur sem tíðavörur eru. Tíðavörur eru jafn mikilvægar og klósettpappír og þess vegna ætti aðgengi að þeim að vera jafn sjálfsagt. Blæðingar gera ekki boð á undan sér og því mikilvægt að hafa tíðavörur til staðar á salernum, ekki síst í skólum og félagsmiðstöðvum þar sem ungt fólk er. Þær leggja einnig til að skattur verði afnuminn af tíðavörum. 1. minni hluti skorar á Alþingi Íslendinga að taka Skota sé til fyrirmyndar í þessum efnum með lagasetningu. Þannig verði séð til þess að tíðavörur verði á salernum í skólum, á frístundaheimilum og öllum opinberum stofnunum. 1. minni hluti kallar eftir því að virðisaukaskattur á tíðavörum verði tekinn til sérstakrar skoðunar í boðuðu frumvarpi um endurskoðun á virðisaukaskatti.

Fyrsti minni hluti tekur undir breytingartillögu meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar um skattalega ívilnun tengiltvinnbíla, niðurfellingu virðisaukaskatts á endursölu vistvænna ökutækja og breytingar á lögum um tekjufallsstyrki.

Í þessu nefndaráliti, sem ég hef nú mælt fyrir, er breytingartillaga sem ég fór áður yfir um að frítekjumark launatekna öryrkja verði hækkað í tveimur skrefum. Þetta er sem sagt breytingartillaga við a-lið 22. gr. frumvarpsins.

Þá hef ég, herra forseti, farið yfir nefndarálitið og mælt fyrir því. Eins og ég sagði í upphafi munu fleiri bandormar koma inn í nefndina sem við þurfum að fara vandlega yfir, bandormar sem ræddir verða í hv. efnahags- og viðskiptanefnd en einnig í velferðarnefnd og gætu varðað jöfnuð í samfélaginu sem við þurfum að gæta sérstaklega vel að núna í heimsfaraldrinum, sem leggst þyngra á ákveðna hópa í samfélaginu heldur en aðra. Að þeim hópum þurfum við að gæta sérstaklega.