132. löggjafarþing — 31. fundur,  28. nóv. 2005.

Starfsmannaleigur.

366. mál
[16:41]
Hlusta

Ásta Möller (S) (andsvar):

Ég get ekkert svarað þessu andsvari öðruvísi en svo að ég tel að sá skilningur hafi verið staðfestur af hv. formanni félagsmálanefndar að þetta frumvarp sé ekki meitlað í stein, eins og ég orðaði það áðan, og að þingið fái vissulega og sannarlega tækifæri til að setja fingraför sín á lögin.