152. löggjafarþing — 31. fundur,  1. feb. 2022.

málefni innflytjenda.

271. mál
[19:36]
Horfa

Jódís Skúladóttir (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Já, það frumvarp er auðvitað í samráðsgátt, sem er vel af því að það á eftir að taka breytingum. Það á eftir að benda á það sem hópum sem munu skila þar inn umsögnum finnst að megi betur fara og það er ferlið. Við erum auðvitað að vinna þetta þannig að þingið kemur líka að því. Við erum að móta það með þessum hætti. Stefna VG og samflokksfólks míns hér á þingi er auðvitað mjög skýr og við munum alltaf standa vörð um það sem við trúum á og ég held að ég hafi ekkert meira um það að segja, við munum auðvitað bara, eins og stefna okkar segir, standa vörð um það eins og við höfum alltaf gert.