151. löggjafarþing — 31. fundur,  3. des. 2020.

staðfesting ríkisreiknings 2019 .

277. mál
[16:26]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta. Ég held að ekki megi rugla saman þessum 7. lið 56. gr. og hinum liðunum sem fjalla um staðlana. Ég held að hægt sé að vinna hraðar að því að gera þetta heildaryfirlit yfir tekjur af auðlindum okkar heldur en að fara í hina liðina við 56. gr. sem eru með lægri númer. Ég vil biðja hv. þingmann um að kanna það og skora á hann að gera þetta hratt og vel.