138. löggjafarþing — 32. fundur, 26. nóv. 2009.
ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
76. mál
Virðulegur forseti. Ég er búin að lesa öll álitin. Ég talaði um það í ræðu minni að vissulega sé áhætta til staðar, það er gengisáhætta sem við þurfum að glíma við. Við í fjárlaganefnd fengum gesti sem fullyrtu að útlitið væri betra og ég var að vitna í það.