148. löggjafarþing — 32. fundur, 1. mars 2018.
Frestun á skriflegum svörum.
Borist hefur bréf frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 245, um strandveiðar, frá Bjarna Jónssyni.
Einnig hefur borist frá utanríkisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 256, um ræðismenn Íslands, frá Smára McCarthy.