132. löggjafarþing — 32. fundur,  29. nóv. 2005.

Fjáraukalög 2005.

144. mál
[13:42]
Hlusta

Frsm. meiri hluta fjárln. (Magnús Stefánsson) (F) (andsvar):

Herra forseti. Varðandi Byggðastofnun þá liggja ekki fyrir neinar tillögur um það mál. Ekkert hefur borist til fjárlaganefndar um það. Hins vegar veit ég að ríkisstjórnin fjallaði um málið á fundi í morgun. En ég get því miður ekki upplýst nánar um það.

Varðandi hitt atriðið sem hv. þingmaður spurði um, um stöðu stofnana, þá geri ég ráð fyrir að við getum dreift þeim upplýsingum á fundi fjárlaganefndar á morgun. Við höfum gengið mjög eftir því að fá þessar upplýsingar og ég vænti þess að þeim upplýsingum verði dreift til fjárlaganefndar á fundi á morgun.