137. löggjafarþing — 32. fundur,  1. júlí 2009.

fjármálafyrirtæki.

85. mál
[21:10]
Horfa

Forseti (Þuríður Backman):

Forseta er ljúft að tilkynna að forseta ber að fara eftir þingsköpum og halda uppi góðum sið og reglum í þingsal og það er mat forseta hverju sinni hvenær hávaði eða frammíköll eru það mikil að það trufli ræður og það fer eftir forseta hverju sinni. Þetta er persónulegt mat og getur aldrei öðruvísi verið.