152. löggjafarþing — 32. fundur,  2. feb. 2022.

stéttarfélög og vinnudeilur.

272. mál
[17:52]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg):

Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um stéttarfélög og vinnudeilur, nr. 80/1938. Frumvarp þetta er nú lagt fram í annað sinn en það var áður lagt fram á 151. löggjafarþingi án þess að Alþingi hafi þá lokið efnislegri afgreiðslu þess. Frumvarpið var samið í félagsmálaráðuneytinu af nefnd sem þáverandi félags- og jafnréttismálaráðherra skipaði í því skyni að bregðast við athugasemdum ríkjahóps Evrópuráðsins gegn spillingu (GRECO) frá 28. mars 2013 er lutu að því fyrirkomulagi sem viðhaft er hér á landi við skipun dómara í Félagsdóm. Nefndina skipuðu fulltrúar frá Alþýðusambandi Íslands, Bandalagi háskólamanna, BSRB, Kennarasambandi Íslands, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Samtökum atvinnulífsins, félagsmálaráðuneyti og fjármála- og efnahagsráðuneyti.

Þrátt fyrir að nefndinni væri einungis ætlað að gera tilteknar breytingar á ákvæðum IV. kafla laga um stéttarfélög og vinnudeilur, nr. 80/1938, að því er varðar skipun dómara í Félagsdóm, taldi nefndin nauðsynlegt að leggja jafnframt til aðrar breytingar á ákvæðum kaflans þar sem litlar breytingar hafa orðið á kaflanum frá setningu laganna árið 1938.

Virðulegi forseti. Með frumvarpinu er lagt til breytt fyrirkomulag við skipun dómara í Félagsdóm til samræmis við tillögur fyrrgreindrar nefndar. Þykja breytingarnar mikilvægar til að tryggja enn betur sjálfstæði og óhlutdrægni Félagsdóms án þess þó að vegið sé að sérstöðu dómsins gagnvart almennum dómstólum. Lagt er til að ráðherra skipi fimm dómara í Félagsdóm. Af þessum fimm dómurum er gert ráð fyrir að Hæstiréttur tilnefni þrjá, þar af forseta og varaforseta dómsins, og að þeir skuli allir skipaðir ótímabundið. Þá er áfram gert ráð fyrir að tveir dómarar séu tilnefndir af Samtökum atvinnulífsins annars vegar og Alþýðusambandi Íslands hins vegar til þriggja ára í senn en gert er ráð fyrir að ráðherra fari með hina formlegu skipun.

Enn fremur er lagt til að hæfiskröfur dómara við Félagsdóm verði auknar en samkvæmt gildandi lögum eru gerðar talsvert minni kröfur til dómara við Félagsdóm en gerðar eru til dómara við almenna dómstóla. Í því sambandi er lagt til að þeir dómarar sem Hæstiréttur tilnefnir skuli vera skipaðir dómarar við Landsrétt eða héraðsdómstól á meðan þeir gegna embætti dómara við Félagsdóm en einnig er lagt til að hæfiskröfur þeirra dómara sem tilnefndir eru af ASÍ og SA verði auknar. Þá eru lagðar til ýmsar breytingar sem miða að því að auka skilvirkni dómsins og skýrleika ákvæða laganna sem lúta að Félagsdómi.

Virðulegi forseti. Félagsdómur gegnir því mikilvæga hlutverki að dæma í réttarágreiningi aðila vinnumarkaðarins. Það er afar brýnt að traust til dómsins og þeirra sem þar sitja ríki meðal aðilanna. Ég ítreka því að frumvarpið er unnið í góðri sátt í nefndinni milli aðila vinnumarkaðarins og ég trúi því að þær breytingar sem hér eru lagðar fram séu til þess fallnar að auka þetta traust enn frekar.

Ég legg til að frumvarpinu verði vísað til hv. velferðarnefndar að lokinni þessari umræðu.