Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 32. fundur,  16. nóv. 2022.

vísun skýrslu Ríkisendurskoðunar til nefndar.

[15:02]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Forseti vill geta þess að fyrr í vikunni óskaði forseti eftir því með formlegum hætti eins og venja er, með bréfi dagsettu 13. nóvember, við stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, að hún tæki til umfjöllunar, sbr. 8. tölulið 1. mgr. 13. gr. þingskapa, skýrslu Ríkisendurskoðunar sem ber heitið Sala á hlut ríkisins í Íslandsbanka 22. mars 2022. Eins og þingheimur þekkir hefur nefndin þegar hafið umfjöllun um skýrsluna.