137. löggjafarþing — 33. fundur, 2. júlí 2009.
fjármálafyrirtæki.
85. mál
Frú forseti. Við erum að greiða atkvæði um lykilgreinina í þessu frumvarpi. Ástæðan fyrir því að ríkisstjórnin leggur þetta mál fram — og það gengur út á að það sé nú heimilt að lækka stofnfé í sparisjóðum. Með þessu sé ég ekki fram á annað en verið sé að ríkisvæða sparisjóðakerfið. Ég segi því nei við þessari hugmyndafræði en ég segi já við minni eigin breytingartillögu.