140. löggjafarþing — 33. fundur,  7. des. 2011.

fjárlög 2012.

1. mál
[16:36]
Horfa

Höskuldur Þórhallsson (F):

Virðulegi forseti. Löggæslumál í landinu eru í miklum ólestri og þar þarf að gera bragarbót á. Við framsóknarmenn leggjum til að settar verði í þennan málaflokk um 500 milljónir og þeim verði ráðstafað til eflingar almennrar löggæslu.