varamenn taka þingsæti.
Borist hafa bréf frá Katrínu Jakobsdóttur og Smára McCarthy um að þau geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Í dag, mánudaginn 19. nóvember, taka því sæti á Alþingi sem varamenn fyrir þau 2. varamaður á lista Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Reykjavíkurkjördæmi norður Álfheiður Ingadóttir, þar sem 1. varamaður hefur boðað forföll, og 1. varamaður á lista Pírata í Suðurkjördæmi, Álfheiður Eymarsdóttir.
Þær hafa áður tekið sæti á Alþingi og eru boðnar velkomnar til starfa að nýju.