150. löggjafarþing — 33. fundur,  18. nóv. 2019.

Landsvirkjun.

[15:51]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Varðandi liðinn störf þingsins var gerð tilraun til þess í fyrra að ná samkomulagi meðal þingflokka um að rýmka nokkuð réttinn til að ræða störf þingsins í viku hverri, t.d. með því að lengja tímann annan dag vikunnar, en þær tilraunir strönduðu á því að ekki náðist samkomulag um fyrirkomulag þeirrar lengdu umræðu og við það situr.