150. löggjafarþing — 33. fundur,  18. nóv. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 91/2019 um breytingu á XVII. viðauka við EES-samninginn.

272. mál
[16:17]
Horfa

Frsm. utanrmn. (Sigríður Á. Andersen) (S):

Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti hv. utanríkismálanefndar um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á XVII. viðauka EES-samningsins, en sá viðauki fjallar um hugverkaréttindi.

Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Gaut Sturluson frá utanríkisráðuneytinu og Daða Ólafsson frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.

Með þessari tillögu er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar sem ég nefndi hér á undan um breytingu á þeim viðaukum sem ég gat um í upphafi og um leið að fella inn í samninginn tilskipun ESB frá árinu 2016 um verndun trúnaðarupplýsinga um sérþekkingu og viðskipti gegn ólögmætri öflun, notkun og birtingu þeirra.

Framsetning tillögunnar telst að mati nefndarinnar í samræmi við 7. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála og leggur nefndin til að tillagan verði samþykkt.

Auk þeirrar sem hér stendur rita undir nefndarálitið hv. þingmenn Bryndís Haraldsdóttir, Ari Trausti Guðmundsson, Gunnar Bragi Sveinsson, Silja Dögg Gunnarsdóttir og Smári McCarthy. Nefndarmaðurinn Logi Einarsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins en ritar undir álitið með heimild í starfsreglum fyrir fastanefndir Alþingis. Aðrir nefndarmenn óupptaldir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.