tímabundnar endurgreiðslur vegna hljóðritunar á tónlist.
Frú forseti. Ég get nú ekki annað en stigið hér aftur upp til að samsinna andsvari og að þessu sinni auðvitað til að þakka fyrir falleg orð í minn garð, en finnst rétt að taka fram að það er ekki nokkur ástæða til að þakka mér eitt né neitt í þessu ferli. Hins vegar tek ég undir með hv. þingmanni að það er vert að þakka öllum þeim sem á einn hátt eða annan komu að þessari vegferð allri því að hún hefur verið farsæl og verður það vonandi áfram og ber að endurtaka: Er einstök á heimsvísu og það gerist ekki af sjálfu sér. Að öðru leyti þakka ég aftur fyrir falleg orð frá hv. þingmanni.