150. löggjafarþing — 33. fundur,  18. nóv. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 78/2019 um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn.

187. mál
[16:02]
Horfa

Frsm. utanrmn. (Sigríður Á. Andersen) (S):

Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti hv. utanríkismálanefndar í máli nr. 187 sem hér liggur frammi. Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund hefðbundna gesti frá utanríkisráðuneytinu. Með þessari þingsályktunartillögu er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar frá því í mars 2019 um breytingu á viðauka við EES-samninginn og um breytingu á IX. viðauka EES-samningsins. Sá viðauki fjallar um fjármálaþjónustu. Felldar verði inn í samninginn eftirfarandi fjórar gerðir Evrópusambandsins:

1. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 600/2014 frá árinu 2014 um markaði fyrir fjármálagerninga. Sú reglugerð breytir einnig reglugerð Evrópusambandsins frá árinu 2012.

2. Felld er inn í samninginn reglugerð ESB frá því í júní 2016 um breytingu á reglugerð frá 2014 og varðar markaði fyrir fjármálagerninga og reglugerð frá 2014 um markaðssvik og reglugerð frá 2014 um bætt verðbréfauppgjör í Evrópusambandinu og verðbréfamiðstöðvar.

3. Felld er inn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins frá 2014 um markaði fyrir fjármálagerninga og einnig að breyta tilskipun frá árinu 2002 og tilskipun frá 2011.

4. Felld verði inn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins frá árinu 2014 um breytingu á tilskipun um markaði fyrir fjármálagerninga.

Nefndin vill taka fram að framsetning tillögunnar telst að mati nefndarinnar í samræmi við 7. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála og leggur því til að tillagan verði samþykkt.

Undir þetta nefndarálit rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Bryndís Haraldsdóttir, Ari Trausti Guðmundsson, Gunnar Bragi Sveinsson, Silja Dögg Gunnarsdóttir og Smári McCarthy.