152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

endurskoðun á laga- og reglugerðaumhverfi sjókvíaeldis.

93. mál
[19:13]
Horfa

Flm. (Halla Signý Kristjánsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég flyt hér þingsályktunartillögu mína um endurskoðun á laga- og reglugerðaumhverfi sjókvíaeldis. Tillagan hljóðar svo:

„Alþingi ályktar að fela innviðaráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að skipa starfshóp til þess að yfirfara laga og reglugerðaumhverfi sjókvíaeldis með hliðsjón af gjaldtöku af fiskeldi.

Markmið starfshópsins verði:

a. að taka saman yfirlit yfir heildargjaldtöku af fiskeldi og undir hverju tekjunum er ætlað að standa, sem og hvernig þær tekjur skiptast á milli ríkis og sveitarfélaga,

b. að tryggja sveitarfélögum þar sem sjókvíaeldi er stundað skýrar heimildir til töku gjalda af sjókvíaeldi,

c. að tryggja að tekjur af slíkri gjaldtöku standi undir nauðsynlegum verkefnum sveitarfélaga og tryggð sé sjálfbærni hafna og samfélaga þar sem sjókvíaeldi fer fram.

Endurskoðun sem felur í sér heildargreiningu á gjaldtöku ríkis og sveitarfélaga af fiskeldi og tillögur að lagabreytingu sem skýra heimildir til töku gjalda til að standa undir nauðsynlegri þjónustu ríkis og sveitarfélaga af sjókvíaeldi skal vera lokið og skýrsla kynnt Alþingi eigi síðar en í lok árs 2022.“

Í greinargerðinni kemur fram, svo ég fari aðeins yfir hana, að þessi þingsályktunartillaga var lögð fram á 151. löggjafarþingi og er nú endurflutt nær óbreytt.

Fiskeldi er nýleg atvinnugrein hér á landi sem hefur byggst upp á undanförnum áratug. Talið er að ef framleiðsla fer í það magn sem burðarþolsgeta svæða sem fiskeldinu er afmarkað segir til um verði útflutningsverðmætið nær 65 milljörðum kr. Fjárfesting upp á tugi milljarða króna liggur í greininni og frekari fjárfesting bíður eftir frekari leyfum til rekstrar. Munar þar mest um útflutning á eldislaxi en verðmæti hans í útflutningi jókst um 29% á milli ára og fór vægi hans í 70% útflutningsverðmætis eldisafurða á árinu. Nú er svo komið að útflutningur á eldislaxi skilar næstmestum verðmætum allra fisktegunda sem fluttar eru frá Íslandi. Fiskeldi hefur farið hratt vaxandi á undanförnum áratug og má eiga von á að þessi atvinnugrein skili tuga milljarða króna verðmætum í þjóðarbúið. Innviðir þurfa að vera fyrir hendi sem og viðhald á þeim. Þannig má tryggja vöxt greinarinnar og sem mestan ávinning af henni.

Árið 2004 var tekin ákvörðun af stjórnvöldum um að sjókvíaeldi yrði einungis leyft á hluta Austfjarða og Vestfjarða og í Eyjafirði. Sú ákvörðun byggðist á því að vernda þyrfti ár þar sem stundaðar væru veiðar á villtum laxastofni landsins. Frá því að þessi ákvörðun var tekin hefur verið mikil uppbygging í sveitarfélögum á Vestfjörðum og Austfjörðum sem hýsa þessa starfsemi. Sveitarfélögin hafa unnið af miklu kappi við að byggja upp og tryggja innviði sem þurfa að vera til staðar svo að starfsemin geti blómstrað. Hér er um að ræða uppbyggingu við hafnarsvæði og einnig uppbyggingu vegna fjölgunar íbúa og styrkingar grunnþjónustukjarna, svo sem grunn- og leikskóla.

Sveitarfélögin njóta þess mikla drifkrafts sem fiskeldið hefur í för með sér. Íbúum fjölgar, atvinnutækifærin verða fjölbreyttari og aldurspíramídinn breytist því að hlutfallsleg fjölgun yngra fólks hefur orðið í umræddum sveitarfélögum. Þessu fylgja aukin verkefni og áskoranir til sveitarfélaga svo um munar. Sum samfélög þar sem íbúum hafði fækkað takast nú á við vaxtarverki í umfangsmikilli og kostnaðarsamri innviðauppbyggingu.

Á vordögum 2019 voru samþykkt lög nr. 89/2019, um töku gjalds vegna fiskeldis í sjó og fiskeldissjóð. Þar er gert ráð fyrir að þriðjungur tekna af gjaldtöku af fiskeldi renni á komandi árum í fiskeldissjóð sem sveitarfélög geta sótt í til innviðauppbyggingar. Ljóst má vera að það dugar þó skammt fyrir innviðauppbyggingu sem sveitarfélög þurfa að ráðast í svo að koma megi til móts við vaxandi þörf vegna aukinna umsvifa fiskeldis. Lítil vissa er hjá sveitarfélögum um hve mikilla tekna er að vænta þar sem sveitarfélögin sækja hvert fyrir sig í sjóðinn og örðugt að áætla tekjur fram í tímann.

Þar sem hér er um að ræða nýja og stóra atvinnugrein er brýn þörf á að yfirfara laga- og reglugerðaumhverfi gjaldtökunnar í heild, sérstaklega það sem snýr að sveitarfélögum þar sem sjókvíaeldi er stundað, og skýra heimildir sveitarfélaga til gjaldtöku. Tryggja þarf að tekjur af slíkri gjaldtöku standi undir nauðsynlegum verkefnum sveitarfélaga ásamt því að tryggð sé sjálfbærni þeirra hafna og samfélaga þar sem þessi atvinnustarfsemi er stunduð.

Með á þessari tillögu minni eru hv. þingmenn Stefán Vagn Stefánsson, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, Ingibjörg Ólöf Isaksen, Þórarinn Ingi Pétursson og Líneik Anna Sævarsdóttir.

Virðulegi forseti. Það efast enginn lengur um að fiskeldi sé mikilvæg atvinnugrein hér á landi. Fjárfesting upp á tugi milljarða króna liggur í greininni og frekari fjárfesting bíður eftir frekari leyfum. Útflutningsverðmæti eldislax jukust um 29% á milli ára. Nú er svo komið að útflutningur á eldislaxi skilar næstmestum verðmætum allra fisktegunda sem fluttar eru frá landi. Það er skemmtileg staðreynd sem kom frá góðum fundum Vestfjarðastofu um fiskeldi, nú í september, að 3% af útflutningsverðmætum Íslands verða til í 1.500 fermetra sláturhúsi á Bíldudal. Samfélögin sem hýsa þessa vaxandi atvinnugrein mega hafa sig öll við að tryggja innviði sem þarf til að mæta þörfum og halda þræði í uppbyggingarferlinu. Uppbygging á innviðum er grundvöllur að vexti greinarinnar og sameiginlegum ábata.

Síðastliðið haust var úthlutað fyrstu greiðslum úr fiskeldissjóði. Fiskeldissjóður á sér stoð í lögum eins og áður kom fram. Þar er gert ráð fyrir að þriðjungur tekna af gjaldtöku fiskeldis renni á komandi árum í fiskeldissjóð. Fyrsta framlagið úr þessum sjóði var í haust og þá voru til skiptanna 105 millj. kr. sem úthlutað var út frá umsögnum sveitarfélaga þar sem sjókvíaeldi er stundað. Þarna hefst kapphlaupið um hver eigi bitastæðustu umsóknina. Tvö sveitarfélög á Vestfjörðum fengu samtals 34 millj. kr. og 70 millj. kr. fór til Austfjarða þrátt fyrir að meiri hluti eldisafurða verði til á Vestfjörðum. Á árinu 2021 voru framleidd rúm 27.000 tonn fyrir vestan en um 17.000 tonn fyrir austan, en taka má fram að eldið vex hraðar fyrir austan núna en fyrir vestan. Samt jókst eldið fyrir vestan um 22% á milli ára. Mikil vinna liggur að baki umsókn og það er ljóst að sveitarfélögin geta ekki gert raunhæfar fjárhagsáætlanir eða framkvæmdaáætlun með hliðsjón af starfsemi atvinnugreinarinnar eins og hægt er að gera út frá öðrum greinum sem stundaðar eru á svæðinu.

Í ljósi þessarar reynslu verður því að segjast að þessi útfærsla sem gerð var varðandi fiskeldissjóð árið 2019 voru mistök. Það er best að viðurkenna það og bretta upp ermar og yfirfara laga- og reglugerðaumhverfi gjaldtöku í fiskeldi, sérstaklega það sem snýr að sveitarfélögum þar sem sjókvíaeldi stundað. Það þarf ekki að snúa að aukinni gjaldtöku heldur þarf að tryggja að tekjur af slíkri gjaldtöku standi undir nauðsynlegum verkefnum þeirra sveitarfélaga sem standa næst eldinu. Sveitarfélög eiga ekki að þurfa að ganga bónleið í samkeppnissjóð til að fjármagna uppbyggingu sem er nauðsynleg til þess að hámarka ábata af fiskeldinu og að hann skili sér til samfélaganna heldur verða stjórnvöld að tryggja sanngjarna dreifingu þessara tekna. — Ég hef lokið máli mínu.