143. löggjafarþing — 34. fundur,  11. des. 2013.

tilhögun þingfundar.

[21:10]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Gert verður 20 mínútna hlé á fundum Alþingis kl. 22 í kvöld að höfðu samráði við forustu fjárlaganefndar sem boðað hefur til fundar í nefndinni til að taka fyrir að nýju fjárlagafrumvarpið fyrir 2. umr. og ljúka afgreiðslu þess þannig að yfir allan vafa sé hafið.