150. löggjafarþing — 34. fundur,  25. nóv. 2019.

málefni Isavia.

[15:45]
Horfa

Orri Páll Jóhannsson (Vg):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra skýr og greinargóð svör og fagna því að við séum sammála um mikilvægi þess að Keflavíkurflugvöllur sé í opinberri eigu. Í stjórnarsáttmála segir að mótuð verði eigendastefna fyrir Isavia og í ljósi fyrri svara langar mig að spyrja ráðherra hvernig hann sér fyrir sér að þau sjónarmið, þ.e. sjónarmið hans, geti komið fram í þeirri stefnu.