145. löggjafarþing — 35. fundur, 17. nóv. 2015.
varamaður tekur þingsæti.
Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Samfylkingarinnar um að hv. 4. þm. Suðvest., Árni Páll Árnason, geti ekki sótt þingfundi á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 2. varamaður á lista Samfylkingarinnar í kjördæminu, Margrét Gauja Magnúsdóttir, 1. varamaður á lista í kjördæminu hefur boðað forföll.
Margrét Gauja Magnúsdóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa að nýju.