135. löggjafarþing — 35. fundur, 3. des. 2007.
fjárlög 2008.
1. mál
Forseti gat þess áðan að niðurstaða hans væri sú að tillagan væri fullkomlega þingleg og er til afgreiðslu á hinu háa Alþingi. (ÖJ: Samkvæmt hvaða lagaheimild er hún þingleg? Á hverju byggist hún? Er þetta ekki svaravert?) Forseti vekur athygli hv. þingmanna á að hér fer fram atkvæðagreiðsla um fjárlög eftir 2. umr. (KolH: Vill forseti ekki svara?)