150. löggjafarþing — 35. fundur, 26. nóv. 2019.
fjárlög 2020.
1. mál
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og ég veit að hann er að vísa til frítekjumarks, að það hafi ekki hækkað. Ég myndi halda að það ætti þá að gerast í tengslum við einhverjar heildarbreytingar sem við höfum talað um í þessum málaflokki þó að þær séu ekki lagðar til hér. Ég myndi reikna með því að það kæmi í heildarsamhengi við aðrar breytingar í málaflokknum.