137. löggjafarþing — 36. fundur,  9. júlí 2009.

endurskipulagning rekstrarhæfra atvinnufyrirtækja.

1. mál
[21:54]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég þakka forseta fyrir svörin en er einhver möguleiki að virðulegur forseti geti verið ögn nákvæmari varðandi hvað við eigum að halda áfram lengi hér í kvöld? Þetta var nokkuð opið. Ef virðulegur forseti vildi vera svo væn að setja okkur inn í það með örlítið meiri nákvæmni, eiginlega með þó nokkuð mikið meiri nákvæmni.