138. löggjafarþing — 36. fundur,  3. des. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[05:04]
Horfa

Forseti (Árni Þór Sigurðsson):

Forseti tekur fram að forseti er ekki í færum til að svara þeirri spurningu sem hér hefur ítrekað verið borin fram vegna þess að forseta hafa ekki borist upplýsingar um þetta álitaefni. Hann mun leita eftir því að fá þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru frá þeim sem það mál þekkja sem væntanlega eru starfsmenn þingsins. Forseti mun kanna hvort hægt sé að fá viðeigandi upplýsingar um þetta álitaefni.