140. löggjafarþing — 36. fundur, 14. des. 2011.
ráðstafanir í ríkisfjármálum.
195. mál
Hæstv. forseti. Ég þakka kærlega fyrir þessi svör. Þau komu mér reyndar ekki á óvart en skýr voru þau.
Ég ítreka fyrri spurningu: Álítur hv. þingmaður að mögulegt hefði verið að komast á þann stað sem við þó erum í dag án þess að auka skattheimtu nokkuð?