135. löggjafarþing — 37. fundur, 5. des. 2007.
stimpilgjöld af lánum til húsnæðiskaupa.
97. mál
Frú forseti. Þar sem stjórnarflokkarnir eru nokkurn veginn sammála eða sammála um að afnema eigi stimpilgjöld þá er ég svolítið hissa á að bíða eigi með þetta þar sem þetta háir ungu fólki sem er að koma undir sig fótunum og reyna að eignast sínar fyrstu íbúðir. Sérstaklega þar sem þetta þekkist ekki í nágrannalöndunum sem við miðum okkur iðulega við.