136. löggjafarþing — 37. fundur, 27. nóv. 2008.
rannsókn á aðdraganda og orsökum falls íslensku bankanna 2008.
180. mál
Hæstv. forseti. Ég horfi fyrst og fremst til stjórnmála, ríkisstjórnar og Alþingis. Hvernig eigi að refsa fyrir slíkt athæfi ef það er ekki lögbrot? Það gera menn í kosningum í lýðræðisríki. Ég færi rök fyrir því að við fáum allar staðreyndir á borðið þannig að íslenska þjóðin, núlifandi og framtíðin geti dregið lærdóm sinn af því.